Allir sem koma hér við!!! Kvitta fyrir sig!!!

LOVE YOUR LIFE

05.12.2007 19:28:56 / einina

2 weeks baby 2 weeks;)

Hæ elsku blómin mín;)

Það vita nú flestir að ég sit heima með brotin bein,brákuð og marin:( Það er ekki að borga sig að vera að djamma svona mikið og enda svona:(og mér leiðist sko ógó mikið... En ég er að hugga mig við að Drífa er að koma heim eftir 2 vikur og ég bara er ekki að geta beðið sko;) En það er smá breyting á plönum með Drífupartý... svo er mál með vexti að Drífa er sko fullbókuð þegar að hún kemur heim og er búin að lofa of mikið upp í hendurnar á sér;) Sniðug stelpuskott... En planið er bara að hafa það strax um áramótahelgina...ekki kominn dagur ennþá en þið fylgist bara vel með þangað til;)Muna að skrá sig líka...en þetta er komið gott...kiss kiss allir...Hrakfallabálkurinn out


» 11 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 20:50:12 / einina

BRJÁLAÐ PARTY 1 DES HÉRNA HEIMA;)

Hæ dúllurassar...það er sko mikið búið að ganga á síðustu daga... ég er búin að vera að vinna og djamma;) Rosalega gaman alveg hreint...en svo var brúðkaup hjá Hrund og Sigga í gær...það var sko  alveg rosalega gaman og Hrund var sko alveg eins og prinsessa...fékk geggjaðan mat...hef sko aldrei smakkað svona góða nautasteik..ALDREI...ummm takk fyrir mig elskurnar og til hamingju;)

En ég var sko ofurölfi og hélt meira að segja ræðu í brúðkaupinu...þið viljið sko ekki vita hvernig það fór skal ég ykkur segja...en svo var haldið heim í party og var margmenni eins og vannt er hérna... Hr Doddi kom og setti náttla allt á annan endan eins og alltaf og var þetta alveg rosalegt...en allar myndir eru bara á myspace...svo þar er hægt að kíkja og að sjálfsögðu eru myndir af nýgiftum hjónunum líka;)

Annar er ég bara komin í pása þangað til að Drífan mín kemur og verður haldið partý henni til heiðurs...partyið er 20 des og ætlum við að byrja kl 12 í hádeginu...ég bara er ekki að geta beðið ;) Rosalega verður æðislegt að fá þessa elsku heim...17 dagar núna;) Hlakkar sko endalaust til;) Love you girl;) Er farin í bili...kiss kiss elskurnar;) og nú  náum við 50 commentum;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 20:34:48 / einina

BANANAPARTÝ ALDARINNAR!!!!

Jæjja elskurnar...ætla að byrja á að segja að það er ekki mér að kenna að það sé ekki komið blogg hér...allt búið að vera bilað...og svo var Tinna mín bara ekki búin að senda mér fyrr en núna fræga bréfið sem á að koma hér fram...


En byrjum á byrjun...ætla að taka það fram að það er sko mikið búið að ganga á hjá okkur vinkonum og hegðun okkar eftir því...og það er sko bara allt Drífu að kenna af því að án hennar getum við ekki verið... En það vita nú flest allir að hérna var haldið Risa bananapartý á föstudaginn og það fór náttla bara allt til fjandans...En við hefðum samt ekki getað skemmt okkur betur...

Hér heima var troðfullt hús og mikil gleði...en þó að Drífa okkar hafi ekki séð sér fært að kíkja á okkur í bananarartýið þá var hún sko aðal hlátursefni kvöldisins...hún sendi nefnilega bréf til okkar Tinnu sem hún sagði að ætti að lesa upp í partýinu fyrir alla...ég bara verð að láta bréfið fylgja...hér kemur það...

 


Ad thid skulud VOGA ykkur ad halda einhversskonar bananapartý í kvöld er náttúrulega ekkert nema skandall midad vid thaer reglur sem ég hef sett hvad vardar partýstand á medan ég er erlendis (Má Einína taka thetta til sín). Ég veit ekki betur en ad thid séud hreinlega búnar ad vera fullar sídan ég lét mig hverfa og tel ég ad nóg sé komid. Thad versta vid thetta allt saman er ad thid erud farnar ad SKÍRA partýin ykkar nöfnum!! Thad kallar ekki á neitt annad en HJÁLP! Ég fann thad út med thví ad spyrjast fyrir med símtölum út um allar taer og tryssur.

Ég byrjadi frekar saklaust med thví ad hringja í maedur ykkar, thar kvádu mér ad thaer hefdu ENGA stjórn á ykkur lengur. Eftir thad hringdi ég í HEIMI, hann er nú svo mikill api ad thad er ekki haegt ad raeda vid thann mann. Eftir thad símtal ákvad ég ad hringja á VOG, their skelltu nú bara á mig og sögdu mér thad ad thid aettud sko ekki heima thar, thar sem ad ykkur hefdi verid fleygt thadan út svo oft blindfullum og rugludum. Kleppur var naesta skref, their töludu nú vid mig í rólegheitum og sögdust vera búnir ad gera allt í sínu valdi til
"Úfff ... hvad get ég gert"

Eftir miklar vangaveltur ákvad ég ad hringja í thessa svokölludu "VINI" ykkar. Thá á ég vid thann SVARTA og hinn NÝRIDNA. Thid erud ad sjálfsögdu svo vitlausar eftir allt thetta fyllerí ad ég geri mér fulla grein fyrir thví ad thid skiljid ekki thad sem ég á vid med theim "svarta" og "hinum nýridna" en their eru mennirnir sem thid erud ad HÖMPAST á! Thau símtöl voru allajafnan mjög skrautleg skal ég segja ykkur. Thessir menn eru VÖKVATIPPI, ekkert varid í thá! Símölin voru baedi afskaplega svipud svo ad ég gef ykkur nokkur daemi úr theim.

Riiiiiinnnnnnng.....
svarti: "YO"
drífa: "Jú saell vinur, Drífa Lind heiti ég og er vinkona hennar Einínu".
svarti: "What the fuck, i don..t understand"
drífa: "well, i am a friend of Einína and i need to ask you some questions about her behavior"
svarti: "uuuu.. who is Einína?"
DU DU DU DU DU .... (skellt á;)

Riiiiiinnnnnnnng.....
hinn nýridni: "halló"
drífa: "Jú saell vinur, Drífa Lind heiti ég og er vinkona hennar Tinnu Huldar".
hinn nýridni: "uuuuuu, veistu, ég er svo thunnur ad ég meika ekki svona crap núna"
drífa: "tja, thetta er nú ekki meira crap en thad ad hún Tinna er sú sem thú varst ad thrykkja í í nótt"
hinn nýridni: "um hvad ert thú ad tala, hver ertu? Ég thekki enga Tinnu Huld. Láttu mig í fridi".
DU DU DU DU DU DU D.... (skellt á;)

Thannig fóru nú thau símtöl stelpur mínar. Ég er búin ad segja ykkur ad thid eigid ekkert ad vera ad vesenast í thessum strákum thangad til ég kem heim. Ég vill hafa ykkur eins frjálsar og fuglinn thegar ég lendi. Ekkert kjaftaedi.

Annars hef ég komist ad thessu stelpur. Núna eru thid búnar ad vera fullar sídan ég fór, sem gera taepa thrjá mánudi! Og hef ég komist ad thví ad ástaedan er hreinlega sú ad ......

..........
.........
........
.......
......

THID SAKNID MÍN !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! :)

Hafidi thad gott í kvöld elskurnar, ekkert rugl og mér finnst ég eiga skilid ad heyra adeins í ykkur!! Ég sendi ykkur fullan kassa af banönum til tilefni thema partýsins, hann aetti ad skila sér í kvöld.

Elska ykkur og sakna ykkar.

Ykkar bestasta í Madrid,
Drífa LindAhora soy el coger loco
(now i am fucking crazy)


Já hún er sko klikk stelpan okkar á spáni...en það er sko æði að geta allavega kennt henni um að við séum að missa vitið og byttufyllur og druslur;) Takk Drífa okkar fyrir að yfirgefa okkur og láta okkur einar um strákana hér...en það eru nú bara nokkrir dagar í þig og við erum í djammpásu þangað til að þú kemur heim:) Hverjir halda að það standist??? Muna að commenta fólk!!! love Einína drusla...


» 45 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 10:34:53 / einina

ER HÆGT AÐ BLOGGA???

Ég er að ath...hvort að hægt sé að setja inn færslu...


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 14:20:15 / einina

ÞAÐ ER AÐ KOMA AÐ ÞESSU!!!!Á LAUGARDAGINN!!!!

 
ég mátti til með að kíkja á skottuna á æfingu og taka nokkrar myndir;) Hú er sko orðin mega flott eins og þið sjáið og svo er bara að mæta og kvetja á fimmtudag og laugardag... Þú rústar þessu elskan:)

» 6 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 22:27:40 / einina

Ein lítil færsla....

hæ elsku dúllurnar mínar...
Það er alveg spurning um að maður þori að halda áfram að blogga eftir öll lætin síðast...kannski koma fleiri geðsjúklingar að commenta...nei vonum ekki...
En ég er búin að vera að halda framhjá á Myspacinu mínu sem að Tinna var að gera fyrir mig...er bara alveg húkt!!!Þetta er voða gaman...en það var að sjálfsögðu djammað um helgina þó að Tinna mín hafi farið frá mér...:( Við Gylfi,'Osk,Auja og Lísa fórum að djamma...og ein stelpa í viðbót sem ég bara get ekki munað hvað heitir...segiði mér það ef að þið vitið það...við byrjuð hérna heima og fórum svo á Players og svo í bæinn...það var rosa gaman og djamm fram á morgun...og höslað líka...allur pakkinn tekin...engin Tinna að passa upp á mig...myndirnar eru komnar inn og endilega kíkið á  þær...en Tinna mín er að koma til mín svo að ég hef þetta ekki lengra í bili...muna að commenta en engir klikkhausar samt:)  love you..kiss kiss


» 10 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 19:17:46 / einina

Heimir afmæli í dag;)

Til hamingju með daginn sæti minn...skál í boðinu!! sé þig eftir smá stund...elska þig...þú ert bestur í heiminum;)

» 27 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 21:35:53 / einina

ROSALEG HELGI...

Byrja á að þakka fyrir frábæra helgi...Rosaleg drikkja á laugardaginn slær út allt annað sem gerðist þessa helgi...setti met í drikkju og það var líka bara svona rosalega gaman,við Tinna,Heimir,Sara og Birna byrjuðum heima hjá mér og skelltum okkur svo á Hressó og drukkum og dönsuðum endalaust...Rosa mikið af sætum strákum...vorum alveg að drukna í þeim... ekki leiðinlegt það... Við enduðum djammið fyrir utan 'Oðal og sátum þar og ruggluðum í fullt af fólki í símanum...Það var sko bara gaman svo þeir sem lentu ílla í okkur..I don´t care!!! Hehehe... það var voða sætur gæi með okkur Gísli held ég örugglega að hann heiti... Svo hringdum við í Dodda og hann sótti okkur í bæinn...eins gott því að leigubílaröðin var sko helvíti...pottþétt 2 tímar í bið ef ekki meira;)


Svo Doddi minn takk takk.... Stoppuðum á Select á leiðinni heim og Tinna og Doddi keyptu sér banana....halló??? Hvernig er hægat að éta Banana eftir djammið??? Er ekki að fatta það!!! En ég er svo mikil hetja að ég var að vinna alla helgina líka...það kallar maður hörku...var hálf full ennþá þegar ég fór í vinnuna á sunnudaginn...rosalegt sko...svo á sunnudagskvöldið var þvínka í hámarki og við Heimir láum í sófanum og horfðum á video fram á nótt...og svo er það mánugadurinn ég sit heima hálf lasin eftir allt rugglið en er í fríi allavega...ekki það slæmt sem sagt...Enn ég get ekki sett inn myndir það er eikkað klikk...svo það er smá bið í þær...kannski Tinna kíki á mig á eftir og hjálpi mér að redda þessu...Takk dúllurnar mínar fyrir helgina...kiss kiss og það er skylda að commenta fólk!!!Ekki gleyma því.... Einína out..


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 23:39:57 / einina

Drífa Lind...Allt of langt í burtu frá okkur

Það er sko kominn tími fyrir nýtt blogg...


Tileinka ætla ég Drífu Lind þetta blogg...því að við söknum hennar svo mikið...Fyrir þá sem að ekki vita þá er þetta Drífa okkar

Hún fór frá okkur til að fara í skóla í Madrid og kemur ekki heim fyrr en rétt fyrir jól...Hennar er rosalega mikið saknað og sérstaklega á þessum vondu dögum sem búnir eru að vera...Við Tinna vorum að spá í að skella okkur til Drífu en ég kemst ekki eins og er og Tinna er ekki ákveðin hvort að hún fari...læt fylgja hér myndir af þeim vinkonum...

 

 

Sætastar;)
og við Drífa í rétta gírnum...vá við söknum þín...
Með tár í augunum og söknuði,kveðja Einína...

» 6 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 17:19:45 / einina

Enn eitt djammið sko;)

Jæjja þá við skvísur skelltum okkur á djammið í gær og það var rosalegt....ég var að setja inn myndir núna og ég er svo þunn að ég get ekki sagt neitt nema að þetta var sko bara gaman....kíkja á myndirnar og commenta....

 

Eigum við að ræða hvað við vorum ógeðslegar klukkan hálf 7 í morgun!!!!
 
ATH. kúluna á auganu á Tinnu....var skölluð á Hressó;)
það var gaman á leiðinni í bæinn;)
sætar ha?
kiss kiss elskurnar;) ok allir að commenta sko:) bæjó Eina beina out!

» 10 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 20:14:35 / einina

Tinna fór á kostum....

Jæjja allir englarnir mínir...það er náttla löngu kominn tími á blogg og myndir...en ég hef bara ekki haft tíma...'Eg er loksins búin að koma öllu fyrir í nýju fallegu íbúðinni minni...(pabbi og mamma gerðu samt mest allt;) Þau eru líka best í heiminum;) Takk fyrir mig svo mikið;)
En mikið er búið að ganga á síðan ég bloggaði síðast...ég fór á djammið með henni Tinnu minni og fleirum og skemmtum við okkur konunglega... Tinna fór á kostum allt kvöldið og var mikið hlegið... eitt verð ég að gefa upp hér...klukkan var að verða 2 og okkur langaði að fara að fara í bæinn og við ákváðum að hringja á leigubíl... en eins og allir vita er það mjög erfitt á laugardagsnáttu svo við vorum með 2 síma á sitthvoru eyranu báðar og hringdum og hringdum...en svo loksins svara hjá Tinnu og hún gargar ég er búin að ná í gegn og við öll hættum náttla að reyna og skellum á!!! Svo byrjar daman á því að segja vitlaust heimilisfang...og við öll öskrum á hana að segja rétt...og hún gerir það...svo öskrum við hvað er langt í hann? hvað er langt í hann? og hún endurtekur okkur í síman...svo heyrum við bara að hún segir okey okey og skellir svo á og springur úr hlátri...og segir svo konan sagði bara"Geriru þér grein fyrir að þú ert að hringja í 118!!! og þetta var sko ekkert lítið fyndið skal ég segja ykkur...og þetta er sko ekki búið...ég tuðaði ogm tuðað hversu heimk hún væri nú og það gæti nú ekki verið að hún væri skyld mér!!! og svo sagði ég henni að ég skyldi sko hringju og hún ætti sko hvergi að koma nálægt því...og ég tek upp síman og hringi og það er strax svarað og heyrist í ungri konu..Dominos góða kvöldiðm get ég aðstoðað??? Hahahaha ég gerði bara það nákvæmlega sama...og búin að röfla út í eitt um hversu heimsk hún væri...ég skal lofa ykkur að þetta var það fyndnasta ever;)en við komumst svo loksins í bæinn og það verður ekki gefið hér upp hvernig því að stundum er lögga að skoða síðuna;)kiss kiss sæti;) Þessi mynd fær að fylgja sko;) Við að verða geðveikar að reyna að ná í leigubíl;)

 

 

 


En svo eru flutningar búnar að vara í marga daga nema á mánudagskvöldið fórum við Barbara og Heimir á fyllyrí hérna heima og það verður helst ekki rætt neitt frekar...ég er búin að vera á bömmer síðan...vona að mér verði fyrirgefið af öllum sem urðu fyrir barðinu;) sorry sorry;) Kemur ekki fyrir aftur;)

Jæjja ég ætla ekki að hafa þetta lengra á eftir að setja inn myndir líka svo þetta er komið gott í bili... munið að commenta og skoða myndirnar;) Kiss kiss;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

06.10.2007 18:34:30 / einina

Allt að gerast;) Einína ein á ný;)

Jæjja dúllurassarnir mínir;)
 Þá er það komið hjá kellu...á lausu og allt lífið að umturnast sko...Er búin að hafa nóg að gera undanfarið og er að flytja í nýja íbúð á föstudaginn....já aftur í Birkiholtið alveg geggjað...og þá byrjar aftur djamm og skemmtileg party....hver man ekki eftir því??

 

 


Annars er ég náttla mikið að vinna og það var mjög erfitt að bíða eftir að Imi færi en það bara fæst ekki fólk til að vinna....en svo kom að þessu og strákurinn fór á fimmtudagsmorgun;) Gott gengi Imi minn;)

En aftur á móti fór ég með Lísu og Tinnu á rúntinn í gærkvöldi og við skemmtum okkur svo konunglega... við keypum okkur bland í poka fyrir 2000 KR... ég mæli sko ekki með því...og við gátum sko ekkert borðað af því;) Það er sko bara ekki girnilegt að hafa svona mikið nammi fyrir framan sig;) Jimmy minn hefði sko ekki orðið eldri ef að hann hefði séð þetta...En ræktin er sko að byrja á fullu aftur á mánudaginn og Jimmy ætlar að halda áfram að púla mér...Hann er ekki enn búinn að gefast upp á mér...þolinmæði sem að einn maður hefur sko;)

Svo er það Karen mín,hún á sko bara 1.mánuð eftir og fallega prinsessan lætur vonandi ekki eftir sér bíða;)
Og svo Eyjó bróðir hann fær strák eftir nokkra daga;) Gaman að fá svona ný og fín kríli;)(gvöð hvað ég er samt feginn að ég er ekki í þessum pakka) Langt í það sko;)

En mál málana er djammið í kvöld... erum á leið í partý til Gylfa og svo á Pravdadjamm á Gauknum...við ætlum sko bara að hafa gaman:) Özzz get bar ekki beðið...

'Eg bara held að þetta sé komið í bili sko....

nei eitt í enn eigum við að ræða hönk gaurana í löggunni á rölti í miðbænum...hrein snild vorum sko ekki að halda vatni yfir þeim;)(Toy boy alveg að meika það,sexý strákur)

Jæjjja bæ í bili;) Muna að commenta svo dúllur;) kiss kiss Einína;)


» 14 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 11:51:39 / einina

Komin heim;(

Hæ blómin mín, er komin heim frá Mallorca og það er bara ekkert gaman að vera komin heim...mig bara langar að fara aftur í sólbað....vika er bara aðeins of stutt sko...en við náðum samt einhverjum lit og ekki hægt að kvarta yfir því...vorum á glötuðu hóteli en fariði til Karenar til að fá hörnungusögurnar....hún lenti í hremmingunum....

 

 

'E tók nú nokkrar myndir og skemmtilegast er nú að við Gummi sungum í karioki og fórum á kostum...Gummi náttla kann alveg að singja en ég engan veginn....svo ég gerði mig bara að fífli....en ætla að setja inn myndir núna fyrir ykkur og blogga svo feitt um miðjan mánuð;) kiss kiss


» 11 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 19:46:10 / einina

Hætt í fílu;)

hæ elsku dúllurnar mínar...loksins er ég hætt að vera í fílu yfir lélegum commentum...löng í þetta skiptið ha? En ég er sko margt búin að gera á öllum þessum tíma... Fór til Florida með Imi mínum og verslaði alveg rodalega mikið...svo mikið að hann ætlar sko aldrei aftur með mér,ég keypti aðalega skó og töskur en þið vitið hvernig ég er þarf alltaf að kaupa eitthvað handa öllum... Svo þegar að ég kom heim frá Florida gaf pabbi mér nýjan bíl...Barbara fékk minn og ég fékk nýja golfinn hennar mömmu...ég veit að ég er dekruð... það verður ekkert rætt meira stelpur minar.... Svo kom að því að daman var sko að fríka út á að búa á völlunum og setti íbúðina á sölu...nema hvað, hún fór á sölu á fimmtudegi 20 manns komu að skoða um helgina...3 tilboð biðu mín á mánudag og við vorum flutt út á laugardegi og heim til mömmu og pabba...þetta gekk rosalega fljótt fyrir sig og mikið gekk á...

Svo er ég sko bara búin að vera að vinna og vinna og vinna síðan að ég kom heim...og er núna hætt að vinna svona mikið svo að ég hafi tíma til að blogga og sonna dúllerí;) Aðal mál á dagskrá er að Karen mín er ólétt og hún er með litla sæta stelpu og ég get ekki beðið eftir henni...ég þarf að bíða alveg til 7nóv. það er sko of langt fyrir mig... Svo er það Eyjó brósi hann er líka að verða pabbi og hann fær lítinn strák...ohhh hvað það verður gaman hjá mér....planið er önnur Florida ferð fyrir þennam tíma að versla barnaföt;) En mér hefur ekki gengið vel að fá einhvern með mér,ef einhver gefur sig fram þá er það frábært....;)

Við stelpurnar fórum út að borða saman í hádeginu í dag og það var rosa gaman takk fyrir daginn dúllur...heimta comment frá ykkur... Ætla að segja þetta gott í bili elskurnar...lofa að blogga fljótt...kiss kiss Einína..


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 22:55:57 / einina

jæjja tími á eitthvað hérna...

jæjja það er kominn tími á blogg...en ég er samt ekki ánægð með comment og heimsóknir svo ef það ekki lagast þá mun þetta vera seinasta bloggið...Annars er ég hin hressasta núna þar sem að Liverool var að slá úr keppni ógeðslega Chelsea...og er það bara það besta í þessari viku sem getur gerst held ég bara...


En nóg um það...ég er mikið búin að vera að gera í april og var mánuðurinn góður...Fór út að borða með Karen,Gumma,Imi og Lísu 12.apríl á afmælisdaginn hennar Karenar,fórum á Argentínu og svo á barrölt á eftir...hér koma myndir frá því;)

 

 

 

 

 

Svo fór ég að djamma með Lísu og skvísunum laugard. 14 og það var rosa stuð á okkur lentum í slagsmálum og algeru rugli þetta kvöld en gaman var það nú samt... Svo er égf búin að vera að vinna mikið og mikið búið að skipta um fólk á café bleu...ef það er einhver sem að hefur áhuga á að koma að vinna hjá mér endilega spjalla við mig;)   Svo fór ég líka að djamma núna á laugardaginn með krökkunum í vinnunni og það var rosa stuð...vorum á Kringlukránni...gerumst ekki meiri rónar en það...

Svo eru 2 vikur í dag að ég fari út og ég er sko alveg að kafna er svo geggjað spennt...ætla sko að versla og versla og versla...jeeee greyið Imi að vera að fara með mér....nei nei ég verð góð...

Er að setja inn nýjar myndir og nýja könnun svo allir að vera duglegir að kíkja og commenta...minnst 10 comment svo að ég bloggi aftur;) Bæ elskurnar í bili;)


» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5